Leikfélag Akureyrar - LA

39 ÞREP - Áhorfendasýning ársins! Sýning Leikfélags Akureyrar á 39 Þrepum var valin ÁHORFENDASÝNING ÁRSINS  2010 á Grímuhátíðinni þann

39 ÞREP - Áhorfendasýning ársins!

Sýning Leikfélags Akureyrar á 39 Þrepum var valin ÁHORFENDASÝNING ÁRSINS  2010 á Grímuhátíðinni þann 16. júní.

Almenningi gafst kostur á að kjósa sýningu ársins á heimasíðu Grímunnar  stuttu fyrir hátíðina sjálfa. Þar lentu 5 leiksýningar í efstu sætunum og gafst fólki  þá tækifæri til að hringja inn og velja uppáhaldssýninguna sína. Sýningin 39 Þrep sem LA sýndi við frábærar undirtektir í vetur fékk flest atkvæði og viðurkenninguna SÝNING ÁRSINS 2010 að mati áhorfenda.

Við hjá LA þökkum hjartanlega fyrir þennan heiður og metum þessa viðurkenningu mikils. LA óskar því starfsfólki og listamönnum sem stóðu að sýningunni og innilega til hamingju.
Einnig óskar LA öllum þeim listamönnum sem hlutu Grímuverðlaun fyrir verk sín innilega til hamingju.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf