7.-9. MAÍ
Vegna mikillar eftirspurnar hefur Leikfélag Akureyrar ákveðið að halda suður á bóginn og sýna 39 ÞREP í Íslensku
óperunni í maí. Uppselt var á nær 50 sýningar hér á Akureyri og gagnrýnendur á einu máli:
„Stórkostleg sýning“. Í þessum óborganlega gamanleik fara 4 leikarar á kostum í 139 hlutverkum. Leikstjóri er
María Sigurðardóttir en hún leikstýrði einnig hinum vinsælu sýningum SEX Í SVEIT og FLÓ Á SKINNI.
39 þrep hlaut hin virtu Olivier verðlaun sem besta gamanleikritið árið 2007 og tvenn Tony verðlaun árið 2008. Leikritið hefur gengið fyrir fullu húsi á West End á þriðja ár.
Leikarar í sýningunni eru Atli Þór Albertsson, Björn Ingi Hilmarsson, Jóhann G. Jóhannsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir. Leikmynd hannaði Finnur Arnar Arnarson og búninga Rannveig Eva Karlsdóttir. Halldór Örn Óskarsson hannaði lýsingu og Gunnar Sigurbjörnsson hljóðmynd.
ATHUGIÐ!
Aðeins ein sýningarhelgi!
Miðasala hefst þriðjudaginn 27. apríl og er hægt að kaupa miða í miðasölu Íslensku óperunnar í síma 511
4200 eða á http://www.opera.is/













