Leikfélag Akureyrar - LA

39 ÞREP - Forsölutilboð! 39 ÞREP verður frumsýnt 8. janúar 2010 og er þegar orðið uppselt á 10 fyrstu sýningarnar. Nú gefst fólki kostur á að kaupa miða

39 ÞREP - Forsölutilboð!

39 Þrep
39 Þrep


39 ÞREP verður frumsýnt 8. janúar 2010 og er þegar orðið uppselt á 10 fyrstu sýningarnar. Nú gefst fólki kostur á að kaupa miða á sérstöku forsölutilboði: 2 miðar á 5.000,- kr (Venjulegt verð 6.900,- kr).

Í þessum nýstárlega og sprenghlægilega spennu-gamanleik takast fjórir hugrakkir leikarar á við 139 hlutverk, í einhverjum hröðustu, mest spennandi og fyndnustu 100 mínútum sem sést hafa á leiksviði.


Hinn dekraði glaumgosi Richard Hannay, sem er vanur  ljúfu lífi bresku yfirstéttarinnar, sogast skyndilega inn í æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma morð, svikulir leyniþjónustumenn, brjálaðir prófessorar, Skotar og vitaskuld íðilfagrar konur. Verkið byggir á kvikmynd Hitchcock frá 1935, 39 steps. Það er óhætt að segja að leikgerðin sé ekki öll þar sem hún er séð, en hana skrifaði breski háðfuglinn Patrick Barlow.


Leikstjóri er María Sigurðardóttir, og leikarar Björn Ingi Hilmarsson, Atli Þór Albertsson, Jóhann G. Jóhannsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir.

EKKI MISSA AF FRÁBÆRRI SKEMMTUN Í SKAMMDEGINU!

Miðasala í síma 4 600 200 og hér á síðunni.

 



Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122
23
23.febrúar:
Gulleyjan Nánar
24
24.febrúar:
Gulleyjan Nánar
25
25.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf