
39 ÞREP verður frumsýnt 8. janúar 2010 og er þegar orðið uppselt á 10 fyrstu sýningarnar. Nú gefst fólki kostur á að kaupa
miða á sérstöku forsölutilboði: 2 miðar á 5.000,- kr (Venjulegt verð 6.900,- kr).
Í þessum nýstárlega og sprenghlægilega spennu-gamanleik takast fjórir hugrakkir leikarar á við 139 hlutverk, í einhverjum hröðustu, mest spennandi og fyndnustu 100 mínútum sem sést hafa á leiksviði.
Hinn dekraði glaumgosi Richard Hannay, sem er vanur ljúfu lífi bresku yfirstéttarinnar, sogast skyndilega inn í æsispennandi atburðarás
þar sem við sögu koma morð, svikulir leyniþjónustumenn, brjálaðir prófessorar, Skotar og vitaskuld íðilfagrar konur. Verkið byggir
á kvikmynd Hitchcock frá 1935, 39 steps. Það er óhætt að segja að leikgerðin sé ekki öll þar sem hún er séð, en
hana skrifaði breski háðfuglinn Patrick Barlow.
Leikstjóri er María Sigurðardóttir, og leikarar Björn Ingi Hilmarsson, Atli Þór Albertsson, Jóhann G. Jóhannsson og Þrúður
Vilhjálmsdóttir.
EKKI MISSA AF FRÁBÆRRI SKEMMTUN Í SKAMMDEGINU!
Miðasala í síma 4 600 200 og hér á síðunni.













