Leikfélag Akureyrar - LA

39 ÞREP - 8. janúar! 39 ÞREP verður frumsýnt 8. janúar 2010 og er þegar orðið uppselt á fjölda

39 ÞREP - 8. janúar!

Tvær af mörgum kostulegum persónum í 39 Þrepum
Tvær af mörgum kostulegum persónum í 39 Þrepum


39 ÞREP verður frumsýnt 8. janúar 2010 og er þegar orðið uppselt á fjölda sýninga.

Í þessum nýstárlega og sprenghlægilega spennu-gamanleik takast fjórir hugrakkir leikarar á við 139 hlutverk, í einhverjum hröðustu, mest spennandi og fyndnustu 100 mínútum sem sést hafa á leiksviði.


Hinn dekraði glaumgosi Richard Hannay, sem er vanur  ljúfu lífi bresku yfirstéttarinnar, sogast skyndilega inn í æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma morð, svikulir leyniþjónustumenn, brjálaðir prófessorar, Skotar og vitaskuld íðilfagrar konur. Verkið byggir á kvikmynd Hitchcock frá 1935, 39 steps. Það er óhætt að segja að leikgerðin sé ekki öll þar sem hún er séð, en hana skrifaði breski háðfuglinn Patrick Barlow.


Leikstjóri er María Sigurðardóttir, og leikarar Björn Ingi Hilmarsson, Atli Þór Albertsson, Jóhann G. Jóhannsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir.

EKKI MISSA AF FRÁBÆRRI SKEMMTUN Í SKAMMDEGINU!

Miðasala í síma 4 600 200 og hér á síðunni.



Dagatal

 Mars 2010 
SMÞMFFL
 12
3
3.mars:
Leiklestur Nánar
4
5
5.mars:
39 þrep Nánar
6
6.mars:
39 þrep Nánar
39 þrep Nánar
7891011
12
12.mars:
39 þrep Nánar
13
13.mars:
39 þrep Nánar
1415161718
19
19.mars:
39 þrep Nánar
20
20.mars:
39 þrep Nánar
21
21.mars:
Söngfuglar Nánar
39 þrep Nánar
22232425
26
26.mars:
39 þrep Nánar
27
27.mars:
39 þrep Nánar
28293031 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf