Næsti Ævintýramorgun í leikhúsinu verður laugardaginn 11. desember og hefst kl. 10.00. Starfsfólkið er
beðið að mæta í Samkomuhúsið eins og venjulega. Þar sem líður að jólum, sem eru hátíð ljóss og friðar,
munum við leggja áherslu á frið og kærleika.
Þetta er síðasti Ævintýramorguninn á þessu ári, og vonumst við til að sjá sem flest duglegt ævintýrafólk á aldrinum 3ja til 8 ára.
Stóra fólkið, sem venjulega sér um að hjálpa ykkur að bursta tennurnar, gefur ykkur að borða reglulega, og les fyrir ykkur á
kvöldin, þarf að senda vefpóst á midasala@leikfelag.is eða hringja í síma 4 600 202 hjá
LA fyrir laugardaginn og láta vita að þið ætlið að mæta.
Þið getið fengið pössun fyrir stóra fólkið á meðan þið farið á vit ævintýranna. En það fer vel um
það, það getur fengið sér kaffi og með því, fyrir mjög fáa peninga, kíkt í blöð, tímarit og bækur,
nú eða spjallað saman.
En þið, ævintýrafólkið, komið með leikurunum okkar á vit ævintýranna í leikhúsinu. Við ætlum að segja ykkur
sögu, syngja með ykkur og njóta friðar og kærleika, eins og maður gerir á jólunum.
Við hlökkum mikið til að hitta ykkur á laugardaginn.
Næsti Ævintýramorgun í leikhúsinu verður svo í janúar 2011 og þið getið fylgst með því hér á
heimasíðu LA eða í Dagskránni hvaða laugardag hann verður.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár!













