Leikfélag Akureyrar - LA

Alþjóðlegi dansdagurinn Alþjóðlegi dansdagurinn er haldinn hátíðlegur víðsvegar um landið í dag 29. apríl. Markmið hans er að yfirstíga allar pólitískar,

Alþjóðlegi dansdagurinn

Alþjóðlegi dansdagurinn er haldinn hátíðlegur víðsvegar um landið í dag 29. apríl. Markmið hans er að yfirstíga allar pólitískar, menningarlegar og siðfræðilegar hindranir og að færa fólk nær hvert öðru í friði og vináttu með sameiginlegu tungumáli – Dansinum.
Dagurinn er haldinn hátíðlegur um heim allan með fjölbreyttum hætti en til hans var stofnað árið 1928 af Alþjóðlegu dansnefnd  ITI/UNESCO. Dagsetningin er til minningar um fæðingardag frakkans Jean-Georges Noverre, sem fæddist árið 1727 og var mikill dansumbótasinni.
Á hverju ári er ávarp velþekktra aðila innan dansheimsins sent um heimsbyggðina. Eftirfarandi eru skilaboð dansdagsins í ár, og eru þau samin af Julio Bocca:
 
Danslistin er vinna, menntun og samtal.
Með henni spörum við okkur orð sem aðrir myndu ef til vill ekki skilja. Við sköpum sameiginlegt tungumál til handa öllum.
Danslistin veitir okkur ánægju, hún gerir okkur frjáls og veitir okkur mannfólkinu huggun, okkur sem ekki getum flogið eins og fuglarnir, frjáls um himinhvolfið, út í hið óendanlega.

Danslistin er himnesk, í hvert sinn öðruvísi en áður - eins og ástarlot - þar sem hjartað hamast í brjóstinu í lok hverrar sýningar af tilhlökkun fyrir næsta endurfundi.

Vakin er athygli á að á heimasíðu alþjóðlegu leikhúsmálastofnunarinnar  http://www.iti-worldwide.org/ má sjá birtingu ávarpsins á fjölmörgum tungumálum.  

Listdanssamfélagið mun halda upp á daginn um allt land m.a. með nýrri danssmíðakeppni KORUS sem haldin verður í Loftkastalanum í kvöld.
Hér er um nýjan og spennandi vettvang að ræða fyrir upprennandi dansara en keppt er í tveimur aldursflokkum, 13-15 ára og 16-20 ára.  Von er á hörkuspennandi keppni en 50 keppendur eru skráðir til leiks frá hinum ýmsu listdansskólum sem starfræktir eru á landinu. Lögð er áhersla á frumsköpun í dansi óháða dansstíl þar sem hugyndaauðgi og dansgleði er í fyrirrúmi.


Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122
23
23.febrúar:
Gulleyjan Nánar
24
24.febrúar:
Gulleyjan Nánar
25
25.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf