Alþjóðlegi dansdagurinn er haldinn hátíðlegur víðsvegar um landið í dag 29. apríl. Markmið hans er að yfirstíga
allar pólitískar, menningarlegar og siðfræðilegar hindranir og að færa fólk nær hvert öðru í friði og vináttu með
sameiginlegu tungumáli – Dansinum.
Dagurinn er haldinn hátíðlegur um heim allan með fjölbreyttum hætti en til hans var stofnað árið 1928 af Alþjóðlegu dansnefnd
ITI/UNESCO. Dagsetningin er til minningar um fæðingardag frakkans Jean-Georges Noverre, sem fæddist árið 1727 og var mikill dansumbótasinni.
Á hverju ári er ávarp velþekktra aðila innan dansheimsins sent um heimsbyggðina. Eftirfarandi eru skilaboð dansdagsins í ár, og eru þau
samin af Julio Bocca:
Danslistin er vinna, menntun og samtal.
Með henni spörum við okkur orð sem aðrir myndu ef til vill ekki skilja. Við sköpum sameiginlegt tungumál til handa öllum.
Danslistin veitir okkur ánægju, hún gerir okkur frjáls og veitir okkur mannfólkinu huggun, okkur sem ekki getum flogið eins og fuglarnir, frjáls um
himinhvolfið, út í hið óendanlega.
Danslistin er himnesk, í hvert sinn öðruvísi en áður - eins og ástarlot - þar sem hjartað hamast í brjóstinu í lok hverrar sýningar af tilhlökkun fyrir næsta endurfundi.
Vakin er athygli á að á heimasíðu alþjóðlegu leikhúsmálastofnunarinnar http://www.iti-worldwide.org/ má sjá birtingu ávarpsins á fjölmörgum tungumálum.
Hér er um nýjan og spennandi vettvang að ræða fyrir upprennandi dansara en keppt er í tveimur aldursflokkum, 13-15 ára og 16-20 ára. Von er á hörkuspennandi keppni en 50 keppendur eru skráðir til leiks frá hinum ýmsu listdansskólum sem starfræktir eru á landinu. Lögð er áhersla á frumsköpun í dansi óháða dansstíl þar sem hugyndaauðgi og dansgleði er í fyrirrúmi.













