Leikfélag Akureyrar - LA

Mögnuð sýning á Djúpinu! Húsfyllir var og mögnuð stemmning á Djúpinu í gærkvöldi.  Ingvar E. Sigurðsson fór á kostum í frábæru leikriti Jóns Atla

Mögnuð sýning á Djúpinu!

Húsfyllir var og mögnuð stemmning á Djúpinu í gærkvöldi.  Ingvar E. Sigurðsson fór á kostum í frábæru leikriti Jóns Atla Jónassonar.

"Ógleymanlegt!" - "Maðurinn er snillingur." "Mögnuð sýning!" voru viðbrögð áhorfenda á leið út úr salnum eftir sýningu.


Djúpið er gestasýning frá Borgarleikhúsinu og Striti.
Leikstjóri og höfundur er Jón Atli Jónsson, lýsingu hannar snillingurinn Björn Bergsteinn Guðmundsson og tónlist semur Hilmar Örn Hilmarsson. Djúpið er ógleymanleg sýning og voru viðtökur áhorfenda í gærkvöldi til marks um það.

Örfáir miðar eru óseldir á sýningarnar í kvöld og því um að gera að panta miða sem fyrst í síma 4 600 200 eftir kl. 13.00 eða fara inn á KAUPA MIÐA hér á forsíðu heimasíðunnar.

 
Bátur heldur úr höfn rétt fyrir dögun. Menn ýmist fleygja sér í koju eða halda sér vakandi á sígarettum, kaffi og veltingi. Enginn hefur minnsta grun um hvað er í vændum. Djúpið er frásögn úr íslenskum veruleika sem lætur engan ósnortinn. Þetta er óður til allra þeirra fjölmörgu íslensku sjómanna sem í gegnum aldirnar hafa haldið á djúpið.
Verkið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu 5. júní og hlaut einróma lof gagnrýnenda.

Sýningar í Samkomuhúsinu:

  • Föstudagur 25. september kl. 19.00
  • Föstudagur 25. september kl. 21.30
Enn eru örfá sæti laus á þessar sýningar!
 

Ekki missa af ótrúlegri leikhúsupplifun!



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf