Leikfélag Akureyrar - LA

Á döfinni í janúar Kæri leikhúsvinur, gleðilegt nýtt ár! Við hjá Leikfélagi Akureyrar fögnum nýju ári með tilhlökkun og gleði í hjarta. Við bjóðum uppá

Á döfinni í janúar

Kæri leikhúsvinur, gleðilegt nýtt ár!

Við hjá Leikfélagi Akureyrar fögnum nýju ári með tilhlökkun og gleði í hjarta.

Við bjóðum uppá margar frábærar sýningar á seinni hluta leikársins.  Sérstaklega kynnum við með stolti stórsýninguna GULLEYJAN sem LA setur upp í samstarfi við Borgarleikhúsið og er frumsýnd í Samkomuhúsinu þann 27. janúar.  

Fimmtudaginn 5. janúar klukkan 13:00 opnum við fyrir forsölutilboð á GULLEYJUNA. Við bjóðum fyrstu 200 miðana á aðeins 2.900 krónur! Tilboðið gildir ekki ef pantað er á netinu. Því skaltu hringja í 4 600 200 eða mæta í miðsölu leikfélagsins í Samkomuhúsinu sem er opin á milli 13 og 17 alla virka daga.  

Um helgina 7. og 8. janúar sýnum við GYLLTA DREKANN klukkan 20:30 í Rýminu. Þetta er gestasýning frá Borgarleikhúsinu og er tilfinningaþrungið gamanleikrit. Það verða aðeins þessar tvær sýningar og það er nú þegar uppselt á aðra og aðeins örfá sæti laus á hina. Þannig að það fer hver að verða síðastur til þess að skella sér á þetta frábæra verk í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur.  

Frekari upplýsingar um sýningarnar og aðstandendur þeirra er að finna hér á síðunni.

 



Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122232425
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf