Leikfélag Akureyrar - LA

FARSÆLL FARSI – Gamanleikur eins og þeir gerast bestir! Í framhaldi af hinum geysivinsæla söngleik Rocky Horror hjá Leikfélagi Akureyrar kemur gamanleikur

FARSÆLL FARSI – Gamanleikur eins og þeir gerast bestir!

Farsæll farsi
Farsæll farsi

Í framhaldi af hinum geysivinsæla söngleik Rocky Horror hjá Leikfélagi Akureyrar kemur gamanleikur eins og þeir gerast bestir. Farsæll farsi verður frumsýndur verður föstudaginn 11. mars.

 

 

Verkið segir frá hjónunum Rebekku og Herberti, sem búa á Akureyri en eru komin suður til Reykjavíkur til að kynna bók Herberts; Farsælt hjónaband, sem er sjálfshjálparbók ætluð öllum hjónum sem vilja viðhalda hamingjusömu hjónabandi.  En er hjónaband Herberts eins fullkomið og bókin gefur til kynna? Skyldi spjallþáttastjórnandinn Ellý Matt koma upp um „hneyksli aldarinnar“, eða kafnar hún inni í fataskáp áður en það tekst? Hvað er þingmaður Miðaldra grænna að gera í næsta herbergi? Verður þetta á endanum farsæll farsi, eða harmrænt tímamótaverk í anda Ingmar Bergmans?

 

 

 Farsæll farsi er gamanleikur sem inniheldur allan pakkann: Framhjáhald, feluleik, misskilning og allrahanda ólíkindatól. Persónur í verkinu eru tíu talsins og leiknar af teimur leikurum, sem eykur enn á spennuna og kallar á lausnir sem munu koma skemmtilega á óvart.

 

 

Leikarar í sýningunni eru þau Edda Björg Eyjólfsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson og  leikstjóri er María Sigurðardóttir, leikhússtjóri LA. 

 

 

Farsæll farsi er bandarískur og heitir á frummálinu Tour de Farce og  var frumfluttur í Chicago árið 1993. Höfundar eru  Kingsley Day og Philip Lazebnik, og sá síðarnefndi  er margverðlaunaður handritshöfundur fyrir kvikmyndir og sjónvarp. Meðal hans þekktustu verka eru Pocahontas, Mulan og Prince of Egypt.

 

 

Karl Ágúst Úlfsson Spaugstofumaður með meiru, íslenskaði og staðfærði verkið. 

 

 


Leikmynd og búningar: Axel Hallkell Jóhannesson
Lýsing: Freyr Vilhjálmsson
Hljóðmynd: Gunnar Sigurbjörnsson
Tónlist: Arnar Tryggvason
Gervi: Ragna Fossberg

 

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf