Leikfélag Akureyrar - LA

Farsæll farsi um Páskana!   Sýningum fer að ljúka!     Farsæll farsi er gamanleikur eins og þeir gerast bestir, með hurðaskellum, feluleik,

Farsæll farsi um Páskana!

 
Sýningum fer að ljúka!
 

 

Farsæll farsi er gamanleikur eins og þeir gerast bestir, með hurðaskellum, feluleik, framhjáhaldi, misskilningi og það er allt á fullu í tæpa tvo tíma! Leikararnir tveir bregða sér í tíu hlutverk, og skipta því stöðugt um gervi. Þetta gerir sýninguna galdri líkasta.

Síðustu sýningar  um páskahátíðina, sjá nánar hér á heimasíðunni.

Gamanleikurinn Farsæll farsi er bandarískur að uppruna eftir þá LaZebnik og Day, en hefur verið íslenskaður og staðfærður af Spaugstofumanninum Karli Ágústi Úlfssyni. Leikstjóri er María Sigurðardóttir, leikhússtjóri LA og leikarar eru Edda Björg Eyjólfsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson sem sló svo eftirminnilega í gegn í 39 þrep á síðasta leikári.

Verkið segir frá hjónunum Rebekku og Herberti, sem búa á Akureyri en eru komin suður til Reykjavíkur til að kynna bók Herberts; Farsælt hjónaband, sem er sjálfshjálparbók ætluð öllum hjónum sem vilja viðhalda hamingjusömu hjónabandi.  En er hjónaband Herberts eins fullkomið og bókin gefur til kynna? Skyldi spjallþáttastjórnandinn Ellý Matt koma upp um „hneyksli aldarinnar“, eða kafnar hún inni í fataskáp áður en það tekst?

Það er tilvalið að bregða sér á Farsælan farsa og hlæja dátt og sjá óviðjafnanlegan leikhúsgaldur!

Síðustu sýningar eru á Skírdag kl. 20.00 og laugardaginn 23. apríl kl. 20.00.  Hægt er að fá góðan hópafslátt á sýninguna fyrir 10 manns eða fleiri!

Miðasala er á www.leikfelag.is, http://www.menningarhus.is/ og í símum 4 600 200 og 450 1000.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf