MIÐARNIR RJÚKA ÚT!!!!
Frá því að forsala miða á ROCKY HORROR hófst í morgun hafa selst mörg hundruð miðar. Frumsýningin er hinn 10. september í Hofi. Fyrst um sinn fer miðasalan fram á netinu á www.leikfelag.is
Rocky Horror er sett upp í samstarfi við Flugfélag Íslands og Valitor og því fá VISA korthafar sérstakan afslátt af miðum í forsölu.
Áskriftarkortasala LA hefst laugardaginn 14. ágúst.













