Leikfélag Akureyrar - LA

Fúlar og LA á rás fyrir Grensás! Þann 28. ágúst sl. sýndi LA sýninguna Fúlar á móti í Loftkastalanum og rann allur ágóði þeirrar sýningar til

Fúlar og LA á rás fyrir Grensás!

Gleðigjafarnir Fúlar á móti!
Gleðigjafarnir Fúlar á móti!

Þann 28. ágúst sl. sýndi LA sýninguna Fúlar á móti í Loftkastalanum og rann allur ágóði þeirrar sýningar til söfnunarinnar Á rás fyrir Grensás. Listamenn og starfsfólk gáfu vinnu sína í þágu þessa mikilvæga málefnis.

Á sýningunni var Edda Heiðrún leikkona sérstakur heiðursgestur, en hún er eins og allir vita ötull talsmaður söfnunarinnar. Alls söfnuðust sex hundruð tuttugu og fimm þúsund krónur og verður féð afhent Grensássöfnuninni í dag í tilefni af Degi söfnunarinnar og sjónvarpsþættinum Á rás fyrir Grensás sem sýndur verður á RUV í kvöld 25. september. Fyrrverandi forseti Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, gat af óviðráðanlegum orsökum ekki þegið boð LA um að vera viðstödd sýninguna þann 28. ágúst, en hún brá sér á sýningu stuttu síðar og fór vinsamlegast fram á að aðgangseyrir hennar þá, rynni til söfnunarinnar og greiddi hún síðan 5.000 kr. fyrir miðann, og rennur sú upphæð beint til söfnunarinnar. LA vonar að söfnunin gangi áfram vel og fagnar því að fleiri leikhús og listamenn munu leggja þessu mjög svo verðuga málefni lið.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf