Leikfélag Akureyrar - LA
Sjóræningjunum sýndur stuðningur
frumsýningu Gulleyjunnar.
Verslunin the Viking á Akureyri hefur styrkt Leikfélag Akureyrar um hátt í hundrað stykki af sjóræningjafánum.
Tilefnið er að félagið frumsýnir sjóræningjaleikritið Gulleyjuna næstkomandi föstudagskvöld.
Þessir fánar verða gefnir til allra þeirra sem eiga flaggstöng og vilja sýna sjóræningjunum samstöðu með
því að draga fána á hún. Áhugasamir eru hvattir til að nálgast fána í miðasölu Samkomuhússins fyrir
frumsýninguna sem er 27.janúar.
Sjóræningjum sýndur samhugur
frumsýningu Gulleyjunnar.
Verslunin the Viking á Akureyri hefur styrkt Leikfélag Akureyrar um hátt í hundrað stykki af sjóræningjafánum.
Tilefnið er að félagið frumsýnir sjóræningjaleikritið Gulleyjuna næstkomandi föstudagskvöld.
Þessir fánar verða gefnir til allra þeirra sem eiga flaggstöng og vilja sýna sjóræningjunum samstöðu með
því að draga fána á hún. Áhugasamir eru hvattir til að nálgast fána í miðasölu Samkomuhússins fyrir
frumsýninguna sem er 27.janúar.
Á döfinni í janúar
Við hjá Leikfélagi Akureyrar fögnum nýju ári með tilhlökkun og gleði í hjarta.
Við bjóðum uppá margar frábærar sýningar á seinni hluta leikársins.  Sérstaklega kynnum
við með stolti stórsýninguna GULLEYJAN sem LA setur upp í samstarfi við Borgarleikhúsið og er frumsýnd í Samkomuhúsinu þann 27.
janúar.
Fimmtudaginn 5. janúar klukkan 13:00 opnum við fyrir forsölutilboð á GULLEYJUNA. Við bjóðum fyrstu 200 miðana á aðeins 2.900 krónur!
Tilboðið gildir ekki ef pantað er á netinu. Því skaltu hringja í 4 600 200 eða mæta í miðsölu leikfélagsins í
Samkomuhúsinu sem er opin á milli 13 og 17 alla virka daga.
Um helgina 7. og 8. janúar sýnum við GYLLTA DREKANN klukkan 20:30 í Rýminu. Þetta er gestasýning frá Borgarleikhúsinu og er
tilfinningaþrungið gamanleikrit. Það verða aðeins þessar tvær sýningar og það er nú þegar uppselt á aðra og aðeins
örfá sæti laus á hina. Þannig að það fer hver að verða síðastur til þess að skella sér á þetta
frábæra verk í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur.
Frekari upplýsingar um sýningarnar og aðstandendur þeirra er að finna hér á
síðunni.
Gulleyjan teaser
allra tíma lifnar á sviðinu í þessari líflegu og bráðfyndnu leikgerð þeirra Karls Ágústs Úlfssonar og Sigurðar
Sigurjónssonar.
Þetta er ævintýraleg
sýning fyrir alla fjölskylduna, full af galdri, gulli, græðgi, bardögum, blekkingum, talandi páfagaukum, kostulegum persónum og eldfjörugri
tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Sýningin er sett upp af Leikfélagi Akureyrar í samstarfi við Borgarleikhúsið.
Tilkynning til foreldra barna í LLA haust 2011
Leiklistarskóli LA lýkur haustönninni næsta mánudag þar sem krakkarnir bjóða aðstandendum á opna æfingu.
Við ætlum að boða nemendur sem segir hér að neðan í Samkomuhúsið þar sem við tökum lokaæfingu öll saman.
Mætingar mán 28.nóv :
- kl.15:00 hópur 1 og 2 (mánud.hópur kl.15 og mánud.hópur kl.17)
- kl. 16:00 hópur 3 (mánud. hópur kl.19) og hópur 4 (þriðjud. hópur kl.17)
- kl.17:30 hópur 5 (þriðjud. hópur kl.19) Stuttmyndahópurinn
Ykkur aðstandendum stendur til boða að koma og sjá krakkana kl.18 eða kl. 19:45. Allir hópar munu sýna í bæði skiptin.
Vinsamlegast tilkynnið komu ykkar í miðasölu svo að allir fái tækifæri að sjá börnin sín. Það eru 4 sæti í
boði fyrir hverja fjölskyldu.
Nemendur komi með hollt og gott nesti, sælgæti er ekki í boði. Nemendur mega gjarnan vera í einhverju hvítu, grænu og/eða rauðu. Ef
slíkar flíkur eða aukahlutir ekki finnast á heimilinu, þá gerir það ekkert til.
Allir nemendur fá viðurkenningarskjöl eftir seinni æfinguna.
Hlökkum til að sjá ykkur og þökkum fyrir frábæra haustönn.
Með leiklistarkveðju, Ásta og Saga.