Leikfélag Akureyrar - LA

Gríðarlegur áhugi! Áheyrnarprufur fyrir aukaleikara til að vera með í Rocky Horror sem LA frumsýnir í lok mars n.k. voru haldnar  helgina 23. Og 24.

Gríðarlegur áhugi!

Áheyrnarprufur fyrir aukaleikara til að vera með í Rocky Horror sem LA frumsýnir í lok mars n.k. voru haldnar  helgina 23. Og 24. Janúar.

Yfir 40 áhugasamir mættu í prufur og upp úr helginni var afráðið hverjir fengju hlutverk. Stefnan var að ráða átta einstaklinga, en valið var mjög erfitt, vegna þess hversu hæfileikaríkt þetta fólk reyndist og því var ákveðið að ráða níu manns.  Þau níu sem munu taka átt í Rocky Horror eru á öllum aldri og af báðum kynum, geta öll dansað og sungið og mörg þeirra hafa ýmsa óvenjulega hæfileika eins og að joggla, ganga á veggjum, fara heljarstökk og fleira. 


Æfingar á Rocky Horror hófust 18. janúar og ganga mjög vel. Frumsýning verður 19. mars. Eins og flestir vita er Rocky Horror hryllilega rokkaður söngleikur og því er mikið fjör á æfingum. Níu leikarar eru í sýningunni og fjórir hljóðfæraleikarar. Og nú hafa bæst við níu aukaleikarar, sem munu koma fram í dans- og söngatriðum í sýningunni. Rocky Horror er einhver rokkaðasti söngleikur allra tíma og stefnt er að því að sýning LA verði stórkostlega rokkuð leikhúsveisla!

Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson,  tónlistarstjóri Andrea Gylfadóttir, leikmynd hannar Pétur Gautur Svavarsson og búninga Rannveig Eva Karlsdóttir. Sunna Björk Hreiðarsdóttir hannar gervi og hárkollur gerir Kristín Thors. Ljósahönnun er í höndum Björns Bergsteins Guðmundssonar og Freys Eyjólfssonar og um hljóðhönnun sér Gunnar Sigurbjörnsson.

Leikarar í sýningunni eru: Andrea Jónsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Magnús Jónsson, Bryndís Ásmundsdóttir, Atli Þór Albertsson, Matthías Matthíasson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Jana María Guðmundsdóttir og Hjalti Rúnar Jónsson.

Á sýningum  verður lifandi tónlist og hljómsveitina skipa: Árni Heiðar Karlsson á hljómborð, Stefán Daði Ingólfsson á bassa, Hallgrímur J. Ingvarsson á gítar og Halldór G. Hauksson á trommur.



Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122
23
23.febrúar:
Gulleyjan Nánar
24
24.febrúar:
Gulleyjan Nánar
25
25.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf