Leikfélag Akureyrar - LA

Gríman - 39 ÞREP Í ÚRSLITUM! Nú er ljóst að sýning Leikfélags Akureyrar 39 ÞREP er í úrslitum sem ÁHORFENDASÝNING ÁRSINS 2010. 5 sýningar eru efstar í

Gríman - 39 ÞREP Í ÚRSLITUM!

Nú er ljóst að sýning Leikfélags Akureyrar 39 ÞREP er í úrslitum sem ÁHORFENDASÝNING ÁRSINS 2010. 5 sýningar eru efstar í þessari kosningu.. 39 ÞREP var sýnd við gífurlegar vinsældir hjá LA sl. vetur og erum við hjá Leikfélaginu þakklát fyrir að hún skuli vera komin í þessi úrslit.  Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að láta ekki sitt eftir liggja, því það er jú almenningur sem getur greitt sýningunni atkvæði sitt. Það þarf einfaldlega að hringja í 900 1201.

Til þess að greiða sýningunni atkvæði með því að hringja í 900 1201.

Um að gera að taka þátt og hafa þannig áhrif á það hvaða sýning fær áhorfendaverðlaunin í ár!!

Tilnefningar til Grímunnar í ár verða kunngjörðar á fréttamannafundi í Þjóðleikhúskjallaranum föstudaginn 4. júní kl. 16. Allir velkomnir!

Grímuhátíðin sjálf verður svo haldin 16. júní í Þjóðleikhúsinu.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf