Leikfélag Akureyrar - LA

Haustönn Leiklistarskóla LA Leiklistarskólinn okkar hefst að nýju mánudaginn 5. september 2011. Allir krakkar á aldrinum 9-15 ára sem áhuga hafa á

Haustönn Leiklistarskóla LA

Leiklistarskólinn okkar hefst að nýju mánudaginn 5. september 2011.
Allir krakkar á aldrinum 9-15 ára sem áhuga hafa á leiklist geta stundað nám á haustönn. Nemendur fá innsýn í ýmsa þætti leiklistarinnar, læra söng, leiktúlkun hreyfingar og framsögn. 
Hver kennslustund er 90 mínútur einu sinni í viku. Önnin stendur í 12 vikur og kennt verður á mánudögum og þriðjudögum.
Kennarar verða:
Saga Jónsdóttir, Ásta Magnúsdóttir, Garún og María Vilborg Guðbergsdóttir.
Skráning á  netfanginu midasala@leikfelag.is, þar sem allar upplýsingar fást.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 2011.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf