LA og Tónlistarskólinn á Akureyri halda jólatónleika í Rýminu 12. desember kl. 17:00.
Aðgangur er ókeypis og eru miðar afhentir í miðasölu LA og við innganginn.
Á tónleikunum koma fram: Signý og Stúfsa, álfastelpur úr Lyklinum af jólunum, Bryndís Ásmundsdóttir, Pálmi Gunnarsson, Jana María Guðmundsdóttir, Ásta Magnúsdóttir, Dagmey Björk Kristjánsdóttir, Antonía, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir og Ólafur Ingi Sigurðsson, auk tríós frá Tónlistarskólanum og Big bandi Tónlistarskólans undir stjórn Alberto Carmonita.
Þetta mun svo sannarlega verða notaleg jólastund fyrir alla fjölskylduna.
Leikfélagið og Tónlistarskólinn vilja beina því til gesta að nota tækifærið og láta gott af sér leiða með
því að setja jólagjöf til bágstaddra barna undir jólatréð í anddyri Rýmisins. Rauði krossinn mun svo sjá um að koma
pökkunum áleiðis til jólasveinanna.
Góða skemmtun og gleðilega hátíð!













