Leikfélag Akureyrar - LA

Karlakór Dalvíkur og Matti Matt Karlakór Dalvíkur og Matti Matt ásamt rokkhljómsveit verða með tónleika í  Samkomuhúsinu á Akureyri sunnudaginn 8.

Karlakór Dalvíkur og Matti Matt

Karlakór Dalvíkur og Matti Matt ásamt rokkhljómsveit verða með tónleika í  Samkomuhúsinu á Akureyri sunnudaginn 8. nóvember kl. 16:00. 

 

Að sögn Guðmundar Kristjánssonar eins talsmanna kórsins er um að ræða rokktónleika þar sem verða flutt lög með Bítlunum og Queen sem stjórnandi kórsins, Guðmundur Óli Gunnarsson hefur útsett. Guðmundur segir að með þessu sé verið að færa karlakórinn inní rokkið, fara nýjar leiðir, og vonandi höfða til breiðari hóps áheyrenda. Ríflega 30 félagar í Karlakór Dalvíkur taka þátt í dagskránni ásamt stórsöngvaranum Matthíasi Matthíassyni og sér til fulltyngis hafa þeir rokkhljómsveit skipaða valinkunnum snillingum, en það eru: Gunnlaugur Helgason, bassaleikari, Daníel Þorsteinsson, píanóleikari, Halli Gulli, trommuleikari og Hallgrímur J. Ingvarsson, gítarleikari.

 

Byrjað var að æfa dagskrána sl. vetur og síðan hafa verið stífar æfingar í haust og nú er sem sagt komið að því að frumflutningi. Guðmundur segir að framhaldið ráðist síðan af undirtektum, en vonandi verði hægt að hafa fleiri tónleika á næstunni.

 

Forsala aðgöngumiða er í Eymundsson, Hafnarstræti á Akureyri og í miðasölu Leikfélags Akureyrar. Miðaverð er kr. 2.500,-




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf