Leikfélag Akureyrar stóð fyrir glæsilegum Rocky Horror leik á Bylgjunni í samstarfi við Flugfélag Íslands, KEA hótel, Bílaleigu
Akureyrar og La Vita Bella. Dregið var úr nokkur þúsund þátttakendum og var það Kristín Lind Steingrímsdóttir sem varð
sú heppna í þetta skiptið. Kristín fær flug með Flugfélaginu, bíl til afnot frá Bílaleigu Akureyrar, gistingu á KEA
hóteli og út að borða hjá La Vita Bella. Svo mun hún að sjálfsögðu skella sér á stórsýninguna Rocky Horror í
Menningarhúsinu Hofi líkt og 12.000 aðrir hafa gert.













