Sýningin á Lilju í kvöld, 19. nóvember er sérstök styrktarsýning til styrktar Aflinu. Aflið eru samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi.
Umræður verða eftir sýninguna og munu konur frá Aflinu ásamt hjúkrunarfræðingum frá FSA sitja fyrir svörum.
Eftir velheppnað málþing þann 17. nóvember var ákveðið að halda áfram að opna umræðuna um mansal hér á landi og hyggja að forvörnum í því sambandi. Þess vegna höfum við verið í sambandi við skólayfirvöld á Akureyri og við hvetjum við foreldra grunnskólabarna í 7.-10. bekk að mæta á sýninguna í kvöld. Við berum öll ábyrgð og þurfum að fræða börnin okkar og varða veginn til framtíðar.
Allra síðustu sýningar á LILJU eru 20. og 21. nóvember!!













