Leikfélag Akureyrar - LA

Leikhúsveisla um páskana! Það verður sannkölluð leikhúsveisla um páskana hjá LA. Hin geysivinsæla sýning 39 þrep verður sýnd í Samkomuhúsinu. Það borgar

Leikhúsveisla um páskana!

Það verður sannkölluð leikhúsveisla um páskana hjá LA. Hin geysivinsæla sýning 39 þrep verður sýnd í Samkomuhúsinu. Það borgar sig að tryggja sér miða í tíma, því uppselt hefur verið á allar sýningar á 39 þrepum frá frumsýningu.
LA býður upp á hina stórskemmtilegu fjölskyldusýningu HORN Á HÖFÐI í Rýminu um páskana. Þarna er á ferðinni vandað leikrit með söngvum, sem hlotið hefur gríðarlega góða dóma og aðsókn. Sýningin er gestasýning frá GRAL Grindvíska atvinnuleikhúsinu.
FÚLAR Á MÓTI koma aftur til Akureyrar og skemmta gestum eins og þeim einum er lagið. Þrjár af okkar bestu gamanleikkonum saman á sviðinu, þær Edda Björgvins, Helga Braga og Björk Jakobs. Þær stöllur munu sýna á Marínu (áður Oddvitinn) þar sem setið er við borð og hægt að njóta ljúfra drykkja.
Ekki er allt upptalið því þann 7. apríl verður þriðji leiklesturinn í Leiklestraröð LA. Þá mun spænsk ástríða ráða ríkjum í flutningi leikara LA og Alberto Carmona sem mun leiða gítarband.
Hægt er að kaupa miða á alla þessa viðburði í síma 4 600 200 og hér á heimasíðunni.

Gleðilega leikhúspáska!



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf