Leikfélag Akureyrar - LA

Leikhúsveisla um páskana! Það verður sannkölluð leikhúsveisla um páskana hjá LA. FÚLAR Á MÓTI koma aftur til Akureyrar og skemmta gestum eins og þeim

Leikhúsveisla um páskana!

Það verður sannkölluð leikhúsveisla um páskana hjá LA.

FÚLAR Á MÓTI koma aftur til Akureyrar og skemmta gestum eins og þeim einum er lagið. Þrjár af okkar bestu gamanleikkonum saman á sviðinu, þær Edda Björgvins, Helga Braga og Björk Jakobs. Þær stöllur munu sýna á Marínu (áður Oddvitinn) þar sem setið er við borð og hægt að njóta ljúfra drykkja.

Hin geysivinsæla sýning 39 ÞREP verður sýnd í Samkomuhúsinu. Það borgar sig að tryggja sér miða í tíma, því uppselt hefur verið á allar sýningar á 39 þrepum frá frumsýningu.

LA býður upp á hina stórskemmtilegu fjölskyldusýningu HORN Á HÖFÐI í Rýminu um páskana. Þarna er á ferðinni vandað leikrit með söngvum, sem hlotið hefur gríðarlega góða dóma og aðsókn. Sýningin er gestasýning frá GRAL Grindvíska atvinnuleikhúsinu.

Ekki er allt upptalið því þann 7. apríl verður þriðji leiklesturinn í Leiklestraröð LA. Þá mun spænsk ástríða ráða ríkjum í flutningi leikara LA og Alberto Carmona sem mun leiða Tangóband.


Hægt er að kaupa miða á alla þessa viðburði í síma 4 600 200 og hér á heimasíðunni.

Gleðilega leikhúspáska!




Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122
23
23.febrúar:
Gulleyjan Nánar
24
24.febrúar:
Gulleyjan Nánar
25
25.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf