Í kvöld miðvikudag lýkur leiklistarnámskeiði fyrir fullorðna (20 ára og eldri) á vegum LA. Námskeiðið er stutt og
hnitmiðað, það hefur verið mikið fjör og almenn ánægja bæði nemenda og kennara.
Góð þátttaka var á námskeiðinu og ljóst að mikill áhugi er á Akureyri og nágrenni á námskeiði sem þessu. Því hefur verið ákveðið að í viðbót við Leiklistarskóla LA, sem nú hefur verið starfræktur í 2 ár, að koma á fót leiklistarnámskeiðum fyrir fólk á aldrinum 15-20 ára og svo fyrir fólk eldra en 20 ára. Nánari upplýsingar um þetta munum við birta hér á heimasíðunni okkar þegar nær dregur haustinu og einnig munum við auglýsa námskeiðin í fjölmiðlum á svæðinu.