Leikfélag Akureyrar - LA

Vorönn lýkur! Nú fer vorönn Leiklistarskóla LA senn að ljúka. Reyndustu nemendurnir hafa undanfarið sýnt Ávaxtakörfuna í Rýminu, en sýningum er

Vorönn lýkur!

Nú fer vorönn Leiklistarskóla LA senn að ljúka. Reyndustu nemendurnir hafa undanfarið sýnt Ávaxtakörfuna í Rýminu, en sýningum er nýlokið.

Annar hópur úr skólanum mun koma fram á Kirkjulistarviku í Akureyrarkirkju nú í byrjun maí og flytja ásamt kórum kirkjunnar norska leikritið Líf og friður, eftir Per Harling.

Yngri hópar Leiklistarskólans munu nú í byrjun maí bjóða foreldrum og nánustu aðstandendum í Samkomuhúsið og sýna þeim hvað þau hafa lært í vetur og fara auk þess í ýmsa skemmtilega leiki.... með foreldrum og systkinum?? Ja, hver veit?

Rúmlega 60 nemendur hafa stundað nám á vorönn Leiklistarskóla LA og hefur verið glatt á hjalla og mikill metnaður í gangi. Haustönn skólans mun svo hefjast líklega í september og þegar nær dregur hausti munum við auglýsa það bæði hér á heimasíðunni og í staðarmiðlum. En LA þakkar nemendum kærlega fyrir samveruna í vetur, þetta hefur verið ómetanlegt samstarf sem hefur gefið okkur í leikhúsinu mikið.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf