Sunnudaginn 15. nóvember verður boðið upp á umræður eftir sýningu á LILJU í Rýminu. Umræðurnar hefjast upp úr kl. 22.00. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra verður viðstödd sýninguna og tekur þátt í umræðunum, ásamt leikurum og leikstjóra sýningarinnar.
Umræðurnar eru öllum opnar og hefjast upp úr kl. 22.00.
ATHUGIÐ að sýningum á Lilju lýkur 21. nóvember.













