Þann 7. nóvember næstkomandi er boðið upp á umræður eftir sýningu á LILJU í Rýminu. Umræðurnar hefjast upp úr kl. 22.00. Fríða Rós Valdimarsdóttir, mannfræðingur verður viðstödd sýninguna og tekur þátt í umræðunum, ásamt leikurum og leikstjóra sýningarinnar. Fríða Rós er höfundur skýrslunnar LÍKA Á ÍSLANDI, en skýrsluna skrifaði hún eftir rannsókn sína á Mansali á Íslandi á árunum 2006-2009. Hægt er að kynna sér skýrslu Fríðu Rósar á heimasíðu Rauða kross Íslands; http://www.rki.is/
LA stefnir á að bjóða oftar upp á umræður á eftir sýningum á LILJU, og fá fleiri fagmanneskjur til að taka
þátt.
Hægt verður að fylgjast með fréttum af því hér á heimasíðunni.
Sýningum á LILJU lýkur í nóvember.













