Þessa dagana fagna tæplega 80 nemendur Leiklistarskóla LA vorannarlokum. Nemendurnir sem eru á aldrinum 8-15 ára hafa þá lokið 10 vikna
námskeiði í leiklist og söng. Aðalkennari í skólanum er Anna Bergljót Thorarensen, en auk hennar hefur Berglind Jónsdóttir leikkona kennt
leiktúlkun. Þær Jana María Guðmundsdóttir leikkona og Eydís Úlfarsdóttir tónlistarkennari hafa kennt söng. Einnig hafa
gestakennarar úr ýmsum deildum leikhússins komið í heimsókn.
Í
tilefni af þessum áfanga munu nemendurnir stíga á svið í Samkomuhúsinu og sýna hvað þeir hafa lært á undanförnum vikum í Leiklistarskólanum.Vegna hins mikla fjölda nemenda á vorönninni, var ákveðið að setja upp tvær sýningar, annars vegar söngleikinn Abbababb eftir Dr. Gunna og
hins vegar söngleikinn Bugsy Malone eftir Alan Parker.
Hópurinn sem sýnir Abbababb var að stíga sín fyrstu skref í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar. Sýningar á Abbababb verða
tvær og fara fram mánudaginn 29. mars klukkan 17:00 og klukkan 19:00.
Hópurinn sem setur upp Bugsy Malone er reyndari, þau eru að ljúka sínu öðru 10 vikna námskeiði við skólann. Þau sýna einnig
tvær sýningar, þriðjudaginn 30. mars og er sú fyrri klukkan 17:00 en hin síðari klukkan 19:00.
Allir eru velkomnir á sýningarnar og kostar aðeins 500 krónur inn.
Gríðarleg aðsókn var í Leiklistarskólann á vorönninni og komust færri að en vildu. Það er því ljóst að
skólinn er kominn til að vera og er það okkur hjá Leikfélaginu mikið gleðiefni. Skólinn mun taka til starfa aftur í haust og þá
verður hægt að fá nánari upplýsingar hér á heimasíðunni. Einnig verður auglýst í fjölmiðlum á
svæðinu.













