Leikfélag Akureyrar - LA

Lokasýningar Leiklistarskóla LA Í næstu viku fagna tæplega 80 nemendur Leiklistarskóla LA vorannarlokum. Nemendurnir sem eru á aldrinum 8-15 ára hafa þá

Lokasýningar Leiklistarskóla LA

Í næstu viku fagna tæplega 80 nemendur Leiklistarskóla LA vorannarlokum. Nemendurnir sem eru á aldrinum 8-15 ára hafa þá lokið 10 vikna námskeiði í leiklist og söng. Aðalkennari í skólanum er Anna Bergljót Thorarensen, en auk hennar hefur Berglind Jónsdóttir leikkona kennt leiktúlkun. Þær Jana María Guðmundsdóttir og Eydís Úlfarsdóttir hafa kennt söng. Einnig hafa gestakennarar úr ýmsum deildum leikhússins komið í heimsókn.

Í tilefni af þessum áfanga munu nemendurnir stíga á svið í Samkomuhúsinu og sýna hvað þeir hafa lært á undanförnum vikum í Leiklistarskólanum.

Vegna hins mikla fjölda nemenda á vorönninni, var ákveðið að setja upp tvær sýningar, annars vegar söngleikinn Abbababb eftir Dr. Gunna og hins vegar söngleikinn Bugsy Malone eftir Alan Parker.
Hópurinn sem sýnir Abbababb var að stíga sín fyrstu skref í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar. Sýningar á Abbababb verða tvær og fara fram mánudaginn 29. mars klukkan 17:00 og klukkan 19:00. Eyþór Ingi Gunnlaugsson, tónlistarmaður og leikari mun spila undir.

Hópurinn sem setur upp Bugsy Malone er reyndari, þau eru að ljúka sínu öðru 10 vikna námskeiði við skólann. Þau sýna einnig tvær sýningar, þriðjudaginn 30. mars og er sú fyrri  klukkan 17:00 en hin síðari klukkan 19:00.

Allir eru velkomnir á sýningarnar og kostar aðeins 500 krónur inn.

Gríðarleg aðsókn var í Leiklistarskólann á vorönninni og komust færri að en vildu. Það er því ljóst að skólinn er kominn til að vera og er það okkur hjá Leikfélaginu mikið gleðiefni. Skólinn mun taka til starfa aftur í haust og þá verður hægt að fá nánari upplýsingar hér á heimasíðunni. Einnig verður auglýst í fjölmiðlum á svæðinu.



Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122
23
23.febrúar:
Gulleyjan Nánar
24
24.febrúar:
Gulleyjan Nánar
25
25.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf