Leikfélag Akureyrar - LA

Lykillinn að jólunum Hugljúf fjölskyldusýning um leyndardóma jólanna.Lykillinn að jólunum var frumsýnd í Rýminu  föstudaginn 27. nóvember kl. 17.00.

Lykillinn að jólunum

Hugljúf fjölskyldusýning um leyndardóma jólanna.
Lykillinn að jólunum var frumsýnd í Rýminu  föstudaginn 27. nóvember kl. 17.00. Húsfyllir var á sýningunni og leikurum og listafólki fagnað gríðarlega í lok sýningar. Auðheyrt var að bæði yngstu og elstu gestirnir skemmtu sér jafn vel.

Næstu sýningar eru laugardaginn 28. og sunnudaginn 29. nóvember.

Lykillinn að jólunum er nýtt verk eftir Snæbjörn Ragnarsson með tónlist eftir hann og litla bróður, Baldur Ragnarsson. Þráinn Karlsson, María Þórðardóttir og Jana María Guðmundsdóttir leika, en leikstjóri er Kolbrún Björt Sigfúsdóttir. Lýsingu hannar Mika Haaranen, leikmynd gera Dýri Hreiðarsson og Bjarki Árnason. Búninga hannar Rannveig Eva Karlsdóttir og um leikmuni og gervi sér Sunna Björk Hreiðarsdóttir. Hárgreiðsla er í höndum Hörpu Birgisdóttur. Hljómsveitin Galaxy sá um útsetningu tónlistar og hljóðmynd í samvinnu við Gunnar Sigurbjörnsson.

Sýningin verður í Rýminu allar helgar í desember!

Hópatilboð fyrir skóla og leikskóla!



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf