Leikfélag Akureyrar - LA

Málþing í Ketilhúsinu Mansal á Íslandi – viðbrögð? Leikfélag Akureyrar stendur fyrir málþingi um mansal í Ketilhúsinu á Akureyri 17. nóvember

Málþing í Ketilhúsinu

Mansal á Íslandi – viðbrögð?
Leikfélag Akureyrar stendur fyrir málþingi um mansal í Ketilhúsinu á Akureyri 17. nóvember næstkomandi, í tengslum við sýningu LA á Lilju. Lilja byggir á sönnum atburðum og segir sögu sextán ára gamallar stúlku frá Litháen sem seld var mansali í kynlífsiðnað í Svíþjóð árið 2000.

Málþingið hefst með sýningu á Lilju í Rýminu kl. 15.00. Að henni lokinni, um kl. 17.20 hefjast framsöguerindi í Ketilhúsinu og eftir stutt veitingahlé verða pallborðsumræður frá kl. 18.30.

Skráning fer fram í síma 4 600 200 og hér á heimasíðunni.

Í ljósi frétta síðustu vikna er flestum orðið ljóst að mansal er stundað á Íslandi og því vill LA opna umræðuna um þessi mál og leita upplýsinga hjá yfirvöldum um hvernig þau hyggjast bregðast við og einnig að fá að heyra reynslu fagaðila af samskiptum við brotaþola mansals.


Á málþinginu mun Dóms- og mannréttindamálaráðherra, Ragna Árnadóttir flytja framsöguerindi ásamt Margréti Steinarsdóttur framkvæmdastjóra Alþjóðahúss, Guðrúnu Jónsdóttur forstöðukonu Stígamóta, sem einnig á sæti í nýstofnuðum viðbragðshópi gegn mansali á vegum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, og Fríðu Rós Valdimarsdóttur, mannfræðingi og höfundi skýrslunnar Líka á Íslandi, sem er niðurstaða rannsóknar á tæplega sextíu mansalsmálum á Íslandi á árunum 2006-2009. Að framsöguerindunum loknum fara fram pallborðsumræður þar sem ræðumenn sitja fyrir svörum ásamt fleiri fagaðilum.



Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122
23
23.febrúar:
Gulleyjan Nánar
24
24.febrúar:
Gulleyjan Nánar
25
25.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf