Árskortasala Leikfélagsins sem hófst laugardaginn 14. ágúst hefur farið gríðarlega vel af stað. Stefnir allt í að hún
verði jfnvel meiri en á síðasta leikári. Í boði er mjög fjölbreytt og spennandi leikár með sýningum sem hæfa öllum
aldurshópum. Í boði eru klassísk leikverk í bland við gamanleiki og að sjálfsögðu fá yngstu leikhúsgestirnir sýningu
við sitt hæfi.
Það verða margir spennandi viðburðir í gangi hjá LA í vetur, Leiklestrar, Ævintýramorgnar fjölskyldunnar í Hofi,
Leikhússport og fleira og fleira.
Til þess að kaupa áskriftarkort geturðu farið inn á ÁSKRIFTARKORT 2010-11 og þar finnurðu eyðublað sem þú getur
fyllt út og komið með til okkar í miðasöluna í Samkomuhúsinu eða komið og fyllt út eyðublöð sem þar liggja frammi.
Miðasalan er opin frá kl. 13.00-17.00 virka daga. Allar nánari upplýsingar fást svo í síma 4 600 200.













