
LILJA var frumsýnd í Rýminu sl. föstudag. Uppselt var á sýninguna og var leikurum og aðstandendum gríðarlega vel fagnað í lok
sýningar.
Leikritið Lilja fjallar um mansal og er byggt á sönnum atburðum. Það var ótrúleg tilviljun, að daginn fyrir frumsýningu var mansalsmál
í fyrsta skipti tekið fyrir dóm á Íslandi. Eins og kemur fram í leikskrá verksins hefur mansal tíðkast hér á landi í
mörg ár en aldrei fyrr verið ákært í slíkum málum.
Næstu sýningar á Lilju eru fimmtudaginn 15. október kl. 20.00 og föstudaginn 16. október kl. 20.00.Þegar er orðið uppselt á fyrstu
sýningarnar en ósóttir miðar eru seldir daglega.
Rétt er að taka fram að Lilja er ekki ætluð börnum yngri en 14 ára og fólk er beðið um að vera tímanlega á ferðinni í
leikhúsið því ekki er hægt að hleypa áhorfendum inn eftir að sýningin er hafin.













