Leikfélag Akureyrar - LA

Óvissusýning vetrarins! Munaðarlaus eftir Dennis Kelly er óvissusýning vetrarins. Munaðarlaus var frumsýnd í Norræna húsinu 8. janúar og hlaut

Óvissusýning vetrarins!

Munaðarlaus eftir Dennis Kelly er óvissusýning vetrarins. Munaðarlaus var frumsýnd í Norræna húsinu 8. janúar og hlaut sýningin frábæra dóma og afbragðs aðsókn. Það eru fjórir ungir leikarar sem standa að sýningunni; Vignir Rafn Valþórsson þýddi verkið og leikstýrir, en leikarar eru þau Hannes Óli Ágústsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson og Tinna Lind Gunnarsdóttir, en Tinna er Norðlendingum að góðu kunn síðan hún lék í Fló á skinni hjá LA leikárið 2007-2008.
Dennis Kelly er eitt heitasta leikskáld Breta en þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir hann er sett upp á Íslandi. Leikritið Munaðarlaus eða Orphans var frumsýnt á Edinborgar hátíðinni sl. sumar við frábærar undirtektir. Það hlaut Fringe First verðlaunin og Herald Angel verðlaun hátíðarinnar. Verkið fékk 5 stjörnur hjá Time Out í London og góða dóma í öllum helstu fjölmiðlum Bretlands.
Munaðarlaus verður sýnt í Rýminu og er fyrsta sýningin fimmtudaginn 11. febrúar. Uppselt er á þá sýningu, en næstu sýningar eru föstudaginn 12. Febrúar og laugardaginn 13. Febrúar.
Hægt er að panta miða hér á heimasíðunni eða í síma 4 600 200.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf