
Rocky Horror hjá Leikfélagi Akureyrar
Vegna fjölda áskorana ætlum við að bæta við nokkrum sýningum í febrúar. Fyrsta sýningin verður föstudaginn 11. febrúar. Miðasala er þegar hafin og miðarnir rjúka út. Handhafar VISA korthafa fá 450,- kr. afslátt af miðaverði. Hægt er að panta miða hér á heimasíðunni, á http://www.menningarhus.is/, á http://www.midi.is/ og í síma 4 600 200. Ekki missa af hryllilega magnaðri skemmtun í skammdeginu!!
Á Akureyri er úrval gistirýma við allra hæfi, fjöldi góðra veitingastaða og verslana. Einnig er tilvalið að nota ferðina norður til að bregða sér á skíði!
Flugfélag Íslands býður upp á spennandi pakka fyrir þá sem vilja fljúga norður til að sjá ROCKY HORROR!













