Leikfélag Akureyrar hefur ákveðið að fresta sýningum á söngleiknum Rocky Horror og frumsýnir verkið 3ja september í hinu glæsilega menningarhúsi Hofi.
Ástæðurnar eru tvær: Annars vegar velgengni 39 þrepa sem gengur fyrir fullu húsi helgi eftir og helgi, og hins vegar of mikill kostnaður við að búa þessari mögnuðu sýningu viðeigandi umgjörð í öðru húsnæði. Allar aðstæður í Hofi munu verða eins og best verður á kosið og því mun draumurinn um viðamikla og glæsilega sýningu á Rocky Horror rætast með haustinu og vel það.
Þeim kortagestum LA sem eiga sæti á Rocky Horror viljum við benda á að kortið gildir á sýninguna í haust. Miðasalan mun hafa samband
við viðkomandi þegar nær dregur varðandi dagsetningu og sætanúmer.
Ef þetta hentar kortagestum ekki geta þeir fengið miðann endurgreiddan, eða valið í staðinn einhverja af þeim leiksýningum sem við
bjóðum upp á í vor. Þá biðjum við viðkomandi að hafa samband við miðasölu okkar við fyrsta tækifæri í
síma 4 600 200 eða á netfangið midasala@leikfelag.is













