Nú er lokið upptökum á plötu með lögunum úr ROCKY HORROR og nokkur laganna þegar komin í spilun á öldum ljósvakans. Platan mun koma í sölu í lok ágúst. Andrea Gylfadóttir tónlistarstjóri sýningarinnar stjórnaði upptökum sem fóru fram í stúdíó Sounds á Akureyri í mars sl.
Verið er að leggja lokahönd á stóra salinn í Hofi, og tækni- og sviðsfólk LA ásamt ljósa-, hljóð- og leikmyndahönnuðum eru að gera klárt fyrir lokaæfingar á ROCKY HORROR sem fram fara í ágúst.
Sýningin mun verða hin glæsilegasta hvað varðar alla umgjörð, og úrvalslið leikara, söngvara og tónlistarmanna mun gleðja leikhúsgesti á hausti komanda.
Frumsýningin er 10. september, og forsala aðgöngumiða hefst 10. ágúst á www.leikfelag.is













