Næstkomandi föstudag, 28. október frumsýnir LA í samstarfi við Hund í óskilum, sjóntónleikana Íslenski fjárhundurinn
– saga þjóðar, en þar fer stórsveitin Hundur í óskilum í gegnum Íslandssöguna á hundavaði í tali og
tónum.
Leikstjóri og dramatúrg sýningarinnar er Benedikt Erlingsson, lýsingu hannar Gunnar
Sigurbjörnsson, en hann sér einnig um hljóðstjórn. Búninga hannar Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og leikmynd hanna Dýri B.
Hreiðarsson og Benedikt Erlingsson.
Um leik, söng og hljóðfæraleik sjá svo þeir félagar í Hundi í
óskilum; Eiríkur G. Stephensen og Hjörleifur Hjartarson og þeir eru einnig höfundar handrits.
Hundur í óskilum hefur á ferli sínum spilað á fjölmörgum
árshátíðum banka og fjármálastofnana og lagt þannig sitt af mörkum til íslenska bankahrunsins. Þeir félagar hlutu
Grímuverðlaunin 2010 fyrir tónlist í uppfærslu Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni í leikstjórn Benedikts
Erlingssonar. Þess má einnig geta að Hundur í óskilum léku á tónleikum í ekki ómerkara húsi en Royal Albert Hall, fyrir
hrunið og þá var Gunnar Sigurbjörnsson einnig hljóðmaður hjá þeim.
Saga þjóðarinnar í meðförum Eiríks, Hjörleifs og Benedikts er
stórgóð kvöldskemmtun, kemur kannski ekki í staðinn fyrir sögukennslu hjá framhaldsskólanemum, en gefur ferska og skemmtilega
sýn.
SVARTA KÓMEDÍAN
Fyrir þá sem ekki eru búnir að fá sér miða á SVÖRTU
KÓMEDÍUNA: Það borgar sig að fara í málið, því sýningin verður einungis sýnd fram að jólum!!!













