Leikfélag Akureyrar - LA

Algjör Sveppi og Aftursnúið - sala hafin! Sala er hafin á hina skemmtilegu sýningu Algjör Sveppi – Dagur í lífi stráks. Sýningin verður

Algjör Sveppi og Aftursnúið - sala hafin!

Sala er hafin á hina skemmtilegu sýningu Algjör Sveppi – Dagur í lífi stráks. Sýningin verður í Samkomuhúsinu.  Aftursnúið  er magnað dansverk sem sýnt verður í Rýminu. Sjá nánar um þessar sýningar hér á heimasíðunni.

Hægt er að kaupa miða á þessar sýningar hér á síðunni, eða í síma 4 600 200. Aftursnúið er sýnt 11. og 12. september og Algjör Sveppi  24. og 25. september.

Áskriftarkortasala LA gengur gríðarlega vel og allt útlit fyrir að sala kortanna verði jafnvel meiri en síðastliðið leikár.


Föstudaginn 10. september verður Rocky Horror svo frumsýnd í Hofi. Miðasala á Rocky Horror hefur verið með ólíkindum og er ekki langt í að uppselt verði á allar sýningar í september. Þannig að það borgar sig að tryggja sér miða hið fyrsta.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf