Leikfélag Akureyrar - LA

Sala hafin á Lykilinn að jólunum Sala er hafin á Lykilinn að jólunum, sem er nýtt leikrit með söngvum eftir Snæbjörn Ragnarsson. Snæbjörn samdi einnig

Sala hafin á Lykilinn að jólunum

Sala er hafin á Lykilinn að jólunum, sem er nýtt leikrit með söngvum eftir Snæbjörn Ragnarsson. Snæbjörn samdi einnig Lápur, Skrápur og jólaskapið sem LA sýndi á aðventunni í fyrra. Kolbrún Björt Sigfúsdóttir leikstýrir, en leikarar í sýningunni eru Þráinn Karlsson, Jana María Guðmundsdóttir og María Þórðardóttir. Tónlistin í sýningunni er eftir þá bræður Baldur og Snæbjörn Ragnarssyni.

Það er um að gera fyrir þau börn sem langar til að vita hvernig í ósköpunum einn jólasveinn kemst yfir að gefa í mörg þúsund skó á einni nóttu, að fara og sjá Lykilinn að jólunum, því þar liggur svarið.

 

Hægt er að panta miða hér á síðunni, eða með því að fara í miðasölu LA milli kl. 13.00 og 17.00, eða hringja í síma 4 600 200.

Góða jólaskemmtun!



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf