Leikfélag Akureyrar - LA

Sögustundin - ævintýrið um Búkollu Leikfélag Akureyrar og Þjóðleikhúsið bjóða elstu deildum leikskóla og 1. bekkjum grunnskóla á svæðinu í leikhúsið næstu

Sögustundin - ævintýrið um Búkollu

Leikfélag Akureyrar og Þjóðleikhúsið bjóða elstu deildum leikskóla og 1. bekkjum grunnskóla á svæðinu í leikhúsið næstu 3 daga. Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leikkona spinnur út frá ævintýrinu um Búkollu, í leikriti Friðriks Friðrikssonar, sem einnig er leikstjóri.


Það er okkur mikið ánægjuefni að geta boðið ungum leikhúsgestum upp á þessa sýningu, til að kynna þeim töfraheim leikhússins, því að leikhúsferðir geta veitt ungum sem öldnum mikla gleði, örvað þroska og eflt hæfileika okkar til að takast á við lífið og tilfinningar okkar.

Hérna fyrir neðan eru tvær myndir á pdf formi, sem foreldrar geta prentað út fyrir börnin. Um er að ræða teikningar af leikmyndinni í Sögustundinni og persónum í Búkollu, sem hægt er að lita, líma á þykkari pappír, klippa út og gera sitt eigið brúðuleikhús.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf