Leikfélag Akureyrar - LA

Spænsk veisla Miðvikudagskvöldið 7. apríl var 3. leiklesturinn í leiklestraröð LA. Að þessu sinni var spænskt þema. Fjöldi manns mætti í Samkomuhúsið og

Spænsk veisla


Miðvikudagskvöldið 7. apríl var 3. leiklesturinn í leiklestraröð LA. Að þessu sinni var spænskt þema. Fjöldi manns mætti í Samkomuhúsið og stemmningin var góð. Leiklesið var leikrit Federico Garcia Lorca; Blóðbrúðkaup í þýðingu Hannesar Sigfússonar.

Kvöldið hófst á sýningu stuttmyndarinnar  Andalúsíuhundurinn eftir Luis Bunuel og Salvador Dalí. Steinunn Atladóttir lék undir á píanó. Þá var flutt ljóð eftir Federico Garcia Lorca sem hann orti til vinar síns Salvador Dalí, Óður til Dalí. Að lokum leiklásu leikarar LA stóran hluta leikritsins Blóðbrúðkaups eftir Lorca.  Það var leikstjórinn  Jón Gunnar Þórðarson sem stjórnaði dagskránni.

Leikarar sem komu fram voru: Atli Þór Albertsson, Bryndís Ásmundsdóttir, Einar Aðalsteinsson, Guðmundur Ólafsson, Jana María Guðmundsdóttir, María Sigurðardóttir, María Þórðardóttir og Ólafur Ingi Sigurðsson.
Tónlist skipaði stóran sess þetta kvöld og það voru nemendur úr Tónlistarskóla Akureyrar sem léku á hljóðfærði undir stjórn Alberto Carmona, sem er spænskur og kennir við Tónlistarskólann. Hann er einnig mikill aðdáandi Lorca. Á klassískan gítar lék Matti Tapani Saarinen. Nemendur úr Tónlistarskóla Akureyrar sem fram komu eru: Anna Gunnarsdóttir, Árný Arnarsdóttir, Ásta Óskarsdóttir, Guðrún Svana Hilmarsdóttir, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, Steinunn Atladóttir og Sunna Björnsdóttir.
 
Næsti leiklestur verður miðvikudaginn 5. maí í Samkomuhúsinu og yfirskrift þess kvölds verður ÍRLAND.

Nánar auglýst í Dagskránni og hér á heimasíðunni þegar nær dregur.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf