Síðasta sýning á Drama Lama er þriðjudaginn 3. maí kl. 20:00. Þetta er styrktarsýning og mun allur aðgangseyrir renna óskiptur til Barnadeildar FSA.
Leikfélag Menntaskólans á Akureyri hefur undanfarið sýnt í samstarfi við LA, hinn bráðfyndna söngleik Drama Lama. Verkið sem
samið er af leikstjóra sýningarinnar, Garúnu, er í lit og með íslensku tali og fjallar um 17 ára Akureyring. Drama Lama hefur notið
fádæma vinsælda og uppselt verið á allar sýningarnar. Miðaverð er 2.500 kr., en skólafólk fær 500 króna afslátt gegn
framvísun skólaskírteinis.
Síðasta sýningin verður þriðjudaginn 3. maí kl. 20:00.
Sýningin er styrktarsýning og mun allur aðgangseyrir renna óskiptur til Barnadeildar FSA.













