Svarta kómedían var frumsýnd í gærkvöldi og var henni afar vel tekið. Mikið var hlegið og leikurum fagnað innilega í lok sýningar.
Sunnu Borg og Gesti Einari var fagnað sérstaklega, enda langt síðan þau hafa leikið hjá LA. Þau brilleruðu í gærkvöldi, sem og allir
leikararnir í sýningunni! Það má segja að listræn stjórn sýningarinnar sé alfarið norðlensk en
leikmynd hannar Þórarinn Blöndal, búninga hannar ODDdesign, ljósahönnuður er líka Akureyringur; Lárus H. Sveinsson og hljóðmynd
og hljóðstjórn er í höndum Gunnars Sigurbjörnssonar. Leikstjóri er svo María Sigurðardóttir leikhússtjóri, sem telst
orðin Norðlendingur eftir margra ára búsetu norðan heiða.
Svarta kómedían er gamanleikur eftir Peter Shaffer. Shaffer er fæddur í Bretlandi en vann sem leikskáld bæði í Bretlandi og
Bandaríkjunum. Hann skrifaði Svörtu kómedíuna árið 1965 og hún sló í gegn í London og síðar í
Bandaríkjunum. Sýningin var tilnefnd til fjölda verðlauna og hefur verið sýnd víða um heim í gegnum tíðina. LR setti sýninguna
á svið í Iðnó árið 1973 og þá í þýðingu Frú Vigdísar Finnbogadóttur.
Þekktustu verk Peter Shaffer eru trúlega EQUUS og AMADEUS. Bæði verkin skrifaði hann upphaflega sem leikrit og nutu þau mikilla vinsælda á West End
og Broadway. Síðar skrifaði hann sjálfur kvikmyndahandrit upp úr leikverkunum og AMADEUS í leikstjórn Milos Forman hlaut m.a. 8 Óskarsverðlaun
þegar hún kom út. Kvikmyndin EQUUS í leikstjórn Sidney Lumet hlaut einnig fjölda viðurkenninga og báðar eru myndirnar orðnar
klassík.
Það má geta þess að tvíburabróðir Peter Shaffer, Anthony, er líka leikskáld og eitt þekktasta verk hans er trúlega SLEUTH
kvikmynd sem hann skrifaði handrit að, upp úr leikverki sem hann hafði samið!
Leikarar í Svörtu kómedíunni hjá LA eru: Einar Aðalsteinsson og Anna Gunndís Guðmundsdóttir sem bæði útskrifuðust sem
leikarar fyrir ári síðan. Svo leika kempurnar Guðmundur Ólafsson og Árni Pétur Guðjónsson mjög skrautlegar persónur. Ívar
Helgason sem sló rækilega í gegn í Hárinu hjá Silfurtunglinu leikur þýskættaðan rafvirkja og Þóra Karitas
Árnadóttir sem lék svo eftirminnilega í Svörtum ketti hjá LA fyrir nokkrum árum leikur uppátækjasaman málara. Það er
líka gaman að segja frá því að í sýningunni koma aftur á svið tveir akureyrskir leikarar, sem ekki hafa verið á sviði
Samkomuhússins um árabil; þau Sunna Borg og Gestur Einar Jónasson, og óhætt er að lofa því að þau koma afar sterk til baka!!













