Leikfélag Akureyrar - LA

Tilkynning til foreldra barna í LLA haust 2011 Kæru Foreldrar. Leiklistarskóli LA lýkur haustönninni næsta mánudag þar sem krakkarnir bjóða aðstandendum á

Tilkynning til foreldra barna í LLA haust 2011

Kæru Foreldrar.

Leiklistarskóli LA lýkur haustönninni næsta mánudag þar sem krakkarnir bjóða aðstandendum á opna æfingu.
Við ætlum að boða nemendur sem segir hér að neðan í Samkomuhúsið þar sem við tökum lokaæfingu öll saman. 

Mætingar mán 28.nóv :

 - kl.15:00 hópur 1 og 2 (mánud.hópur kl.15 og mánud.hópur kl.17)

 - kl. 16:00 hópur 3 (mánud. hópur kl.19) og hópur 4 (þriðjud. hópur kl.17)

 - kl.17:30 hópur 5 (þriðjud. hópur kl.19) Stuttmyndahópurinn

Ykkur aðstandendum stendur til boða að koma og sjá krakkana kl.18 eða kl. 19:45. Allir hópar munu sýna í bæði skiptin.

Vinsamlegast tilkynnið komu ykkar í miðasölu svo að allir fái tækifæri að sjá börnin sín. Það eru 4 sæti í boði fyrir hverja fjölskyldu.

Nemendur komi með hollt og gott nesti, sælgæti er ekki í boði. Nemendur mega gjarnan vera í einhverju hvítu, grænu og/eða rauðu. Ef slíkar flíkur eða aukahlutir ekki finnast á heimilinu, þá gerir það ekkert til.

Allir nemendur fá viðurkenningarskjöl eftir seinni æfinguna.

Hlökkum til að sjá ykkur og þökkum fyrir frábæra haustönn.

 Með leiklistarkveðju, Ásta og Saga.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf