Leikfélag Akureyrar - LA

Valitor styrktaraðili LA Þann 8. október skrifuðu Jónína  Ingvadóttir frá Valitor og María Sigurðardóttir leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar undir

Valitor styrktaraðili LA

Þann 8. október skrifuðu Jónína  Ingvadóttir frá Valitor og María Sigurðardóttir leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar undir samstarfssamning. Með samningnum gerist Valitor máttarstólpi leikhússins leikárið 2009-2010 og verður samstarfsaðili við uppsetningu söngleiksins Rocky Horror, sem frumsýndur verður í mars 2010.

 

Samstarf við Valitor er leikhúsinu afar mikilvægt. Máttarstólpar LA gera leikfélaginu mögulegt að halda úti öflugu leikhússtarfi. Þeirra innkoma til viðbótar við stuðning hins opinbera gerir félaginu kleift að ráðast í vandaðar og metnaðarfullar leiksýningar og bjóða gestum LA sama miðaverð og í fyrra og þar með gert fleirum kleift að sækja fjölbreyttar leiksýningar leikfélagsins í vetur.  LA hlakkar til að eiga gott samstarf við Valitor í vetur.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf