Leikfélag Akureyrar - LA

Sjóræningjunum sýndur stuðningur Sjóræningjum sýndur samhugur Á döfinni í janúar Gulleyjan teaser Tilkynning til foreldra barna í LLA haust 2011 Saga

Fréttir

Sjóræningjafánum verður flaggað vítt og breytt um bæinn í tilefni af frumsýningu Gulleyjunnar.

Verslunin the Viking á Akureyri hefur styrkt Leikfélag Akureyrar um hátt í hundrað stykki af sjóræningjafánum. Tilefnið er að félagið frumsýnir sjóræningjaleikritið Gulleyjuna næstkomandi föstudagskvöld.

Þessir fánar verða gefnir til allra þeirra sem eiga flaggstöng og vilja sýna sjóræningjunum samstöðu með því að draga fána á hún. Áhugasamir eru hvattir til að nálgast fána í miðasölu Samkomuhússins fyrir frumsýninguna sem er 27.janúar.



Sjóræningjum sýndur samhugur

Sjóræningjafánum verður flaggað vítt og breytt um bæinn í tilefni af frumsýningu Gulleyjunnar.

Verslunin the Viking á Akureyri hefur styrkt Leikfélag Akureyrar um hátt í hundrað stykki af sjóræningjafánum. Tilefnið er að félagið frumsýnir sjóræningjaleikritið Gulleyjuna næstkomandi föstudagskvöld.

Þessir fánar verða gefnir til allra þeirra sem eiga flaggstöng og vilja sýna sjóræningjunum samstöðu með því að draga fána á hún. Áhugasamir eru hvattir til að nálgast fána í miðasölu Samkomuhússins fyrir frumsýninguna sem er 27.janúar.


Á döfinni í janúar

Kæri leikhúsvinur, gleðilegt nýtt ár!

Við hjá Leikfélagi Akureyrar fögnum nýju ári með tilhlökkun og gleði í hjarta.

Við bjóðum uppá margar frábærar sýningar á seinni hluta leikársins.  Sérstaklega kynnum við með stolti stórsýninguna GULLEYJAN sem LA setur upp í samstarfi við Borgarleikhúsið og er frumsýnd í Samkomuhúsinu þann 27. janúar.  

Fimmtudaginn 5. janúar klukkan 13:00 opnum við fyrir forsölutilboð á GULLEYJUNA. Við bjóðum fyrstu 200 miðana á aðeins 2.900 krónur! Tilboðið gildir ekki ef pantað er á netinu. Því skaltu hringja í 4 600 200 eða mæta í miðsölu leikfélagsins í Samkomuhúsinu sem er opin á milli 13 og 17 alla virka daga.  

Um helgina 7. og 8. janúar sýnum við GYLLTA DREKANN klukkan 20:30 í Rýminu. Þetta er gestasýning frá Borgarleikhúsinu og er tilfinningaþrungið gamanleikrit. Það verða aðeins þessar tvær sýningar og það er nú þegar uppselt á aðra og aðeins örfá sæti laus á hina. Þannig að það fer hver að verða síðastur til þess að skella sér á þetta frábæra verk í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur.  

Frekari upplýsingar um sýningarnar og aðstandendur þeirra er að finna hér á síðunni.

 


Gulleyjan teaser

Frægasta sjóræningjasaga allra tíma lifnar á sviðinu í þessari líflegu og bráðfyndnu leikgerð þeirra Karls Ágústs Úlfssonar og Sigurðar Sigurjónssonar. 

Þetta er ævintýraleg sýning fyrir alla fjölskylduna, full af galdri, gulli, græðgi, bardögum, blekkingum, talandi páfagaukum, kostulegum persónum og eldfjörugri tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Sýningin er sett upp af Leikfélagi Akureyrar í samstarfi við Borgarleikhúsið. 



Tilkynning til foreldra barna í LLA haust 2011

Kæru Foreldrar.

Leiklistarskóli LA lýkur haustönninni næsta mánudag þar sem krakkarnir bjóða aðstandendum á opna æfingu.
Við ætlum að boða nemendur sem segir hér að neðan í Samkomuhúsið þar sem við tökum lokaæfingu öll saman. 

Mætingar mán 28.nóv :

 - kl.15:00 hópur 1 og 2 (mánud.hópur kl.15 og mánud.hópur kl.17)

 - kl. 16:00 hópur 3 (mánud. hópur kl.19) og hópur 4 (þriðjud. hópur kl.17)

 - kl.17:30 hópur 5 (þriðjud. hópur kl.19) Stuttmyndahópurinn

Ykkur aðstandendum stendur til boða að koma og sjá krakkana kl.18 eða kl. 19:45. Allir hópar munu sýna í bæði skiptin.

Vinsamlegast tilkynnið komu ykkar í miðasölu svo að allir fái tækifæri að sjá börnin sín. Það eru 4 sæti í boði fyrir hverja fjölskyldu.

Nemendur komi með hollt og gott nesti, sælgæti er ekki í boði. Nemendur mega gjarnan vera í einhverju hvítu, grænu og/eða rauðu. Ef slíkar flíkur eða aukahlutir ekki finnast á heimilinu, þá gerir það ekkert til.

Allir nemendur fá viðurkenningarskjöl eftir seinni æfinguna.

Hlökkum til að sjá ykkur og þökkum fyrir frábæra haustönn.

 Með leiklistarkveðju, Ásta og Saga.

 


Saga þjóðarinnar - Hundur í óskilum

Næstkomandi föstudag, 28. október frumsýnir LA í samstarfi við Hund í óskilum, sjóntónleikana Íslenski fjárhundurinn – saga þjóðar, en þar fer stórsveitin Hundur í óskilum í gegnum Íslandssöguna á hundavaði í tali og tónum. 



Mikið fjör á frumsýningu!!

Svarta kómedían var frumsýnd í gærkvöldi og var henni afar vel tekið. Mikið var hlegið og leikurum fagnað innilega í lok sýningar. Sunnu Borg og Gesti Einari var fagnað sérstaklega, enda langt síðan þau hafa leikið hjá LA. Þau brilleruðu í gærkvöldi, sem og allir leikararnir í sýningunni! Það má segja að listræn stjórn sýningarinnar sé alfarið norðlensk en 


Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122
23
23.febrúar:
Gulleyjan Nánar
24
24.febrúar:
Gulleyjan Nánar
25
25.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf