Leikfélag Akureyrar - LA

Vorönn LLA lýkur! Vorönn Leiklistarskóla LA lauk í maí  með sýningu á söngleiknum Líf og friður sem hópur úr skólanum lék og söng ásamt barnakórum

Vorönn LLA lýkur!

Vorönn Leiklistarskóla LA lauk í maí  með sýningu á söngleiknum Líf og friður sem hópur úr skólanum lék og söng ásamt barnakórum Akureyrarkirkju á fyrsta degi Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju. Áhorfendur fylltu kirkjuna og stemmningin var mjög góð og hinum ungu leikurum og söngvurum vel fagnað. Fyrr um morguninn var síðasta barnamessa vetrarins í Akureyrarkirkju, þar sem séra Hildur Eir messaði og börn og fullorðnir tóku þátt í söng og leik. Nemendur LLA sungu 3 lög úr Ávaxtakörfunni við mikla lukku.
Í Leiklistarskóla LA stunduðu 65 nemendur nám á vorönn, í 4 mismunandi hópum eftir reynslu. Reyndasti hópurinn sýndiÁvaxtakörfuna í Rýminu fyrir páska, tveir hópar sýndu senur úr barnaleikritum og höfðu „opinn tíma“ fyrir nánustu aðstandendur og svo sýndi síðasti hópurinn Líf og frið nú um helgina. Leikfélag Akureyrar þakkar þessum ungu og skemmtilegu nemendum innilega fyrir frábæran og gefandi vetur og vonast til að hitta sem flest þeirra aftur í haust.
Þegar líður á sumarið verða birtar upplýsingar hérna á heimasíðunni um Leiklistarskólann, hvernig hægt er að sækja um og þ.h.
Gleðilegt sumar!


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf