Áskriftarkort LA er
ávísun á góðan vetur!
Ath. Sölu Áskriftarkorta fyrir yfirstandandi leikár
lauk í byrjun nóvember.
Með áskriftarkorti tryggir þú þér öruggt sæti á fjórar leiksýningar af fjölbreyttri vetrardagskrá LA. Verðið
er ótrúlega lágt, þú færð áskriftarkortið á aðeins 7.900 kr en fullt verð er 14.300 kr. Með kaupum á
áskriftarkorti sparar þú því um 45% og missir ekki af vinsælum sýningum.
Þú færð öruggt sæti á:
- Lilja
- 39 þrep
- Rocky Horror
Og velur svo til viðbótar eina af eftirfarandi sýningum:
- Djúpið
- Við borgum ekki, við borgum ekki
- Íslenski dansflokkurinn
- Lykillinn að jólunum
- Fúlar á móti
- Horn á höfði
- Jesús litli
- Óvissusýning
Sérkjör korthafa:
500 kr. afsláttur af öðrum miðum og gjafakortum hjá LA
500 kr. afsláttur af aðgöngumiðum í Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið og Íslensku óperuna
Bestu fáanlegu verðin á geisladiskum sem gefnir eru út í tengslum við uppsetningar LA
Forkaupsréttur að miðum á eina krónu á leiklestra LA í vetur
500 kr. afsláttur á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
*Áskriftarkort fyrir unga fólkið
Landsbankinn og leikhúsið – fyrir unga fólkið
Áskriftarkort fyrir unga fólkið á aðeins 3.950 kr. Gildir fyrir 25 ára og yngri.
Landsbankinn greiðir niður áskriftarkort fyrir ungt fólk svo nú geta allir verið flottir á því og gerst fastagestir í leikhúsinu!













